08.05.2008 07:07:22 / oskarf
Einhvern veginn var það svo að þessi túr lagðist vel í mann þrátt fyrir að mikið væri af nýjum og óreyndum mannskap. Enda var það svo að vinnslan gekk fremur rólega og tóku höfðingjarnir í brúnni vel á því, oftar en ekki biðu þeir með trollið upp í sjó meðan vinnsla var í gangi og höfðum við ekki undan. Það er líka að mikið var um uppákomur hjá okkur, alskonar mót voru í gangi, kvöldvökur og margt fleirra. En þetta lagaðist smátt og smátt og gerir þetta að góðum túr. Ekki er það mettúr en góður samt. um 600 tonn sem gera tæpa 12000 kassa samasem rúmar 100 milljónir sem gerir stærrsta túrinn í ár.
Ég byrjaði á Snorra fyrir rúmum 2 árum og gat maður ekki verið heppnari með áhöfn, menn sem voru þrælvanir til sjós og í vinnslu og með góða stjórnendur. Og líka það að þá hafði verið tekið upp róðraplan, ársplanið lág fyrir í fyrsta túr á árinu og gátu menn séð hvenær þeir ættu að vera á sjó og hvenær þeir ættu frí. Svona róðraplan er snilld og hjá okkur hefur það staðist í um 90%, hvaða dag á að fara út og klukkan hvað og hvenær verður í landi þannig að mér hefur aldrei þótt túrar of langir þegar vitað er hvenær verður komið í land.
Á þessum tveimur árum hefur maður kynnst mörgum, góðum sjómönnum, efnilegum sjómönnum og leðjum og vil ég þakka þeim góð kynni. Sjómennirnir fá jólakort frá mér en ekki leðjurnar þannig að þið verðið að bíða fram að jólum til að sjá hvernig ég flokka ykkur. Sérstakar kveðjur fá Gummi og Tóti en það eru baadermenn sem ég byrjaði með.
Starfsmannafélag Sturlunga hefur verið virkt, með uppákomur á sjómannadegi, þorrablót, kom með nýtt lógó, fánar, merkta boli og svo átti að fara erlendis til í haust en salan eyðilagði það, maður var orðinn voða spenntur að fara með þessu liði í vatnrennibrautagarð. Við í nefndinni, Magnús vélstjóri, Pétur stýrimaður og Óskar Freyr viljum þakka fyrir samstarfið og óskum ykkur góðs gengis á nýjum vetfangi og við vitum að þið óskið okkur þess sama.
Hafið þið það gott elskurnar mínar og megi guð og gæfa fylgja ykkur. Bless bless.
»
07.05.2008 07:18:07 / oskarf
Oddur í Dal sá mikli heimsborgari var að fræða vaktina sína c-vakt að þrjár hörmungar hefði dunað á íslendinga, móðurharðindin, spænskaveikin og framsóknarflokkurinn. Tekið skal fram að Oddur er með stóra mynd af Davíð Oddssyni á besta stað í stofunni heima og er blár út í gegn sannur sjálfstæðismaður.
Ég vil þakka heimildamanni mínum á c-vakt Grétari baadermanni fyrir allar upplýsingar sem hann hefur gefið mér um sína vinnufélaga.
Ritstjórn síðunar barst indælt og einlægt bréf nú í morgunsárið og er það birt hér
Kæri upplýsingafulltrúi Sturlunga
Það skal tekið strax fram að við félagarnir þrír í vélinni erum miklir aðdáendur þínir. Með visku þinni og góðum upplýsingum hefur þú gert líf okkar og eflaust allra veruna hér fræðandi og skemmtilega.
En það er eitt sem angrar okkur lítillega það er að aldrei hefur verið minnst á okkar góðu verk og þakkað fyrir. Þú veist það vel kæri fulltrúi að við erum manna fljótastir að koma að ef eitthvað bjátar á og erum fljótir að laga hluti. Allir hafa getað leitað til okkar með hinu ýmis verk og við gert þau eftir bestu getu.
Væri möguleiki kæri fulltrúi að það kæmi fram á Sturlungasíðunni hve góðir við værum eða í það minnsta að fá þakkir.
Fyrir hönd vélstjóra þinn vinur að eilífu
Frill
Að sjálfssögðu verðum við þessari bón þeir vélarmanna. Takk fyrir.
Og svo í lokin koma hér tvær sögur af Gústa selfyssing eða Gústa okkar eins og sumir kalla hann. Gústi er mjög áhugasamur um allt sem viðkemur að sjómennsku og er duglegur spyrja en það skal tekið fram að Gústi hafði aldrei áður farið á sjó, aldrei unnið við fisk og aldrei borðað hann heldur. Hann komst að því með því að spyrja að lúða væri herramannsmatur og datt honum það í hug að færa björg í bú heim á Selfossi. Hann tók frá væna lúðu og þegar tími gafst þá bað hann einn reynslubolta um aðstoð sem ver ekkert mál. Reynsluboltinn tók lúðuna, skelti henni upp á borð og flakaði öðru megin og réttir Gústa flakið. Svo tekur hann lúðuna og snýr henni við og flakar, hendir flakinu í Gústa og segir honum að ganga frá. Þá kallar Gústi í boltan og bendir á hausinn og beinagarðinn og spyr hvernig þetta væri eldað, hann hafði hent flökunum.
Hin sagan er að Gústi kemur sem oftar upp í brú rétt eftir að búið er að hífa, rifið og lítið sem ekkert í. Hann spyr Pétur hvort eitthvað sé að. Það er búið að vera eitthvað vesen á trollinu og mikið riflildi segir Pétur. Gústi verður ein augu og jafnframt svekktur að hafa misst af fjöri og spyr, Hverjir voru að rífast.
»
06.05.2008 07:23:06 / oskarf
Nú þegar þrír sólarhringar eru eftir af síðast túr hjá Snorra Sturlusyni Ve 28 hefur nefndin ákveðið að hafa útsölu á öllum varning sem hún er með. Þetta er til að mynda gos og sælgæti, tóbak, dvd myndir, fatnaður ýmis s.s. bolir merktum með Sturlungamerkinu og jakkaföt þessi flottu vínrauðu með mynd af skipinu á baki. Allt á að seljast annars lendir það á nefndarmönnum að skipt rest á milli sín sem yrði svakalega leiðinlegt.
Eitt sem nefndarmenn vilja nefna er að þegar þeir komu á vakt einn daginn þá héldu þeir og fleirri að við værum staddir í miðbæ borg óttans þ.e Reykjavík. Maður hélt að veggjakrotarar væru bara þar en þeir hafa laumast hingað, skammist ykkar og þrífið þetta strax.
Við höfum uppgötvað nýjan grínista í okkar röðum en það er kvennmaðurinn á A vaktinni, hún segir klósettbrandara út í eitt þessa dagana, gæti verið einhver landspenningur sé komin í hana.
Vinur minn Sverrir Stormsker hringdi í mig í dag og biður að heilsa ykkur öllum hvort sem þið eruð okay eða hommar og lesbíur. Hann sagði að ég mætti benda á síðuna hans sem er stormsker.net
»
05.05.2008 07:07:41 / oskarf
Þetta hefur verið rólegur dagur hjá okkur enda er sunnudagur hvíldardagur og voru menn bara í sínum pælingum. Sumir þurftu að segja öðrum hvað þeir væru að pæla. Palli vélstjóri var að pæla hvort við myndum fá rjómatertu þegar við kæmum í land, þetta er nú síðasti túrinn hjá Snorranum. Hann hlýtur að fá nýtt rússneskt nafn trúi ekki öðru. En við sögðum Palla að vera ekki að gera sér vonir með að fá tertu nema að við myndum gera mettúr. Þá nefnir Palli það hvort við gætum ekki falsað aflatölur og verðmæti, fengjum stóra tertu og þegar hún væri búin þá yrði allt leiðrétt. Þetta er ágætis hugmynd en flestir ef ekki allir mundu þiggja eitthvað annað en rjómatertu. Þetta er svona bulldagur og verðum við að leyfa okkur það annað slagið.
En þessi túr hefur verið alveg ágætur, ágætis fiskerí, brúarkarlarnir lítið áberandi og fínasti mannskapur á dekki, eldhúsi og vél. Og fyrst minnst er á lítt áberandi karla þá eru þeir búnir að minna á sig, dekkmenn úti að gera við.
»
04.05.2008 19:19:44 / oskarf
Tóta er búin að vera að stríða okkur í morgun því var ekkert blogað þá. En litlu strákarnir hér um borð eru alltaf að byðja um einhvern leik sem þeir geta tekið þátt í og var nefndin ekki lengi að finna leik fyrir þá, Frúin í Hamborg. Pétur stakk upp á Magnúsi Friðrik sem spyril og ég segi það satt mér sárnaði, að segja að Magnús sé klókari en ég sem spurningastjóri en ég mótmælti ekki í kurteisisskyni við Magnús. Og svo voru reglur kynntar ekki segja, Já eða nei, svart eða hvítt og koll af kolli. Svo var byrjað.
Einar Þór
M: Hvað gerðuru við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér.
E. Keypti crossara.
M. Crossarar eru það margir krossar
E. Nei það er mótorhjól
EEEE úr leik
Gústi
M: Hvað gerðuru við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér.
G. keypti bíl
M. Hvernig á litinn
G Oh voða að reyna að plata mig, mér finnst svartur flottastur en ég segi hvítur.
Búúú úr leik
Elvar
M: Hvað gerðuru við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér.
E. keypti mér gönguskó
M. ferðu í fjallgöngu
E. Nei aldrei oh klikkaði
Úr leik
Arnar
M: Hvað gerðuru við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér.
A. Fór í sólarlandaferð til Costa del sol
M. er það á Ítalíu
A. uhmm
M. á Spáni
A. Ihi
M. Hvaða gjaldmiðill er þar dalur
A. uhmm
M. Evra
A. Ihi
M. Ætlaru í vatnsbrautargarð
A. Já sko
ding dong úr leik
Þeir voru fleirri sem tóku þátt s.s. Maggi litli, Sverrir Þór og Darri en þetta voru fjórir bestu og miðað við fjölda spurninga er öllum á óvart Arnar Leó Meistarinn í Frúin í Hamborg. Til hamingju með titilinn Arnar
»
03.05.2008 07:18:07 / oskarf
Hér um borð er starfræktur gönguklúbbur sem ber nafnið Göngufélagar og einn sem nennti ekki. Gaman að vita til þess hve ólíkir þjóðfélagsþegnar eru í honum, litli og stóri matsmennirnir, tækjastjóri og snyrti og pökkunartröllið. Þau eru dugleg að ganga um á vaktinni, kíkja inn í móttöku, skoða stakkageymsluna, taka púlsinn á efra dekki og jafnvel fram á stefni og brúarþak. Það er sama hve langt þau fara alltaf eru þau komin á réttum tíma í kaffi og pásur.
Það kom til tals að fá þá félagana Palla vél og Júlíus Örn til að sjá um skemmtikvöld og voru þeir alveg til í það og fóru að skipuleggja kvöldið. En þegar nefndin frétti hvað þemað yrði var lagt blátt bann við þessa skemmtun hjá þeim og er verið að leita að mönnum sem hafa öðruvísi húmor.
Við í nefndinni vorum nokkuð ánægðir með yngstu kynslóðina, voru tveir sem komu til okkar og spurðu hvort við gætum ekki skipulagt mót í einhverju sem tæki virkilega á. Og við hugsuðum að þetta væru kannski ekki leðjur þrátt fyrir allt. Fórum við að skippuleggja sundmót þ.a.s. flugsundskeppni, röðuðu við 18 körum á dekkið með sjó í og átti að fljúga á milli kara, virkilega erfitt fyrir þá yngri við eldri höfum oft prófað þetta. Sýndu við krökkunum þetta en þá kom í ljós að þeir áttu við tölvuleik þar sem skjóta á saklaust fólk, stela bílum og þannig ódæðisverk. Nei það verður ekkert svoleiðis rugl hér um borð.
En annars er allt gott að frétta hér frá Snorranum fínasti afli og allt í góðum gír.
»
02.05.2008 07:20:49 / oskarf
Oddur Magnússon í Dal gamall eyjapeyji er bátsmaður í þessum túr. Það var núna á glassi þ.a.s. vaktarskiptum að hann fór í eitt karið sem við geymum fisk í og var að sparka síðustu ufsanum út. Ég sá mér leik á borði og opnaði fyrir sjórör sem liggur í karið. Sjórör þetta dælir 80 lítrum á sekúndu og það verður að segjast að Oddur í Dal blotnaði aðeins. En ég gerði ekki ráð fyrir því að það væri kvenmaður á vaktinni, svona týpa sem sér og heyrir allt. Og Hrönn frá Sauðarkrók öskrar með sinni skræku röddu Óskar gerði þetta, Óskar gerði þetta og Oddur í Dal var alveg brjálaður. Ég laumaði mér bara í rólegheitum inn í minn klefa og varla sestur niður er stýrimaðurinn riðst inn og segir mér að koma strax upp í brú. Og þegar ég kem þangað eru ekki stýrimaðurinn, yfirvélstjóri og Skipstjórinn nývaknaður og úrillur að taka á móti mér. Þetta var eins og þegar maður var í fyrsta og öðrum bekk í barnaskóla og átti reglulega fundi með kennara, yfirkennara og skólastjóra. Og skipstjórinn úr Gerði byrjaði að hrauna yfir mig, Óskar Freyr maður gerir ekki svona, Óskar maður og bla bla bla. Eftir dágóða stund er ég loks spurður útaf hverju ég hafi gert þetta við svona góðan mann sem Oddur í Dal er. Ég reyndi að koma með góðan samúðarsvip sem ég held að hafi virkað og sagði þeim að þann 22. júní 1970 vorum við í fótbolta á Vísisvellinum sunnan við Gamla Spítalann sem nú er ráðhús bæjarins og kannski að Oddur hafi verið pirraður á að ég var alltaf að sóla hann uppúr skónum að hann þrusaði í mig, og var það virkilega sárt. Eftir þessar útskýringar skildu tree amigos mig alveg en báðu mig að ef ég gerði svona hluti aftur þá að gera það á daginn þegar skiperinn væri vakandi hann yrði að fá sinn svefn.
Ég sit bara sáttur í mínum klefa og er að fara að koma mér í koju, Oddur í Dal er í sturtu og þarf að fá sér þurr föt. Ég verð að muna að stroka yfir Odd í svörtu bókinni og skrifa Hólmfríði Hrönn Þórsdóttir í hana.
Hörður Stál og hnífur Jó spurði Magga vél afhverju aldrei væri skrifað um hann þar sem hann nú stofnaði þessa síðu. Hér kemur ein um hann, Hörður er að fara að kaupa sér bíl, Bens 2004 model. Hann kostar 2.2 m og Hörður borgar 80 þúsund útborgun og borgar 40 þúsund á mánuði í bílalán og verður þá búin að borga hann upp eftir ár.
Reikni nú hver fyrir sig.
»
01.05.2008 07:17:56 / oskarf
Nú í kvöld kl. 20.30 hófst kvöldvaka í boði feðganna Gumma og Magga litla og verður að segjast eins og er að ekki var búist við miklu. Þeir feðgarnir fóru frekar rólega af stað, vesen með hljóðkerfiið og voru í rólegum þjóðhátiðarlögum, Þú veist hvað ég meina mær í þeim dúr. En svo fór að koma meirri kraftur í þetta hjá þeim og fór stemningin vaxandi og þegar ljós voru slökkt og kveikt á kertum tóku þeir lag Lífið er yndislegt ætlaði allt um koll að keyra. Var virkilega gaman að sjá kvarteitin úr skagafirði þau Arnar, Bjössa, Helga og Hrönn stand við sviðið og dilla sér fyrir framan þá feðganna. Bjössi kom til mín og spurði hvernig hann gæti gerst eyjamaður hann ætlaði að flytja lögheimili sitt strax á morgun það minnst sem hann gæti gert er að borga útsvar í bæjarfélag sem á svona flotta og magnaða tónlistarmenn. En feðgarnir voru ekki búni því nú fóru þeir í sígilda rokktónlist, Maggi tók lagið, Ertu þá farin en Gummi fór í erlenda slagara og tók Hótel Californía. Loka lag kvöldsins var ekki í verri kantinum þeir tóku Stairway to heven og fór sæluhrollur um viðstadda, t.a.m. maðurinn sem gengur um í bol með textanum, Hér er ég og er til í spjall, varð orðlaus. Frábært kvöld frábærir tónlistarmenn. Takk fyrir.
En maður spyr sig hvernig er hægt að vera með þessa líka hæfileikanna og nota þá ekki. Það læðist á mann sá grunur að ættingjar hafa verið að draga úr þeim. Sagt við þá, Nei strákar mínir þetta er frekar lummó hjá ykkur verið frekar að keyra bekkjarbíl á þjóðhátíð þið eruð góðir í því. Ég gæti vel trúað sumum tengdum þeim til að haga sér svona, það er nú voða þægilegt að vera skutlað heim eftir fjör næturinnar og það frítt ár eftir ár. En við meirihluti áhafnar Snorrans hvetjum ykkur til að slá í gegn á næstu hátíð, takið frá stæði í brekkunni og þjóðhátíðargestir munu hópast um ykkur
»
29.04.2008 20:02:16 / oskarf
Ég ætla að birta hér tvær sögur úr Sturlungabók, sú fyrri er ný en sú seinni gerðist í janúartúrnum.
Þannig er hér um borð að það eru tveir kvenmenn og eru þær á sitthvori vakt, algjörar prímadonnur. Var það á einni vaktinni er við vorum í pásu að prímadonnan sagði dreymin að hún væri búin að hitta draumaprinsinn og tók ég eftir því að brjóstkassinn á nokkrum stækkaði þvílíkt og leið augnablik þá sagði hún að hann væri ekki hér um borð. Mistök, alveg hrikaleg mistök hjá henni því eftir þetta hefur hún sjálf þurft að skera matinn niður, sækja pepsi, laga stólinn við snyrtilínu, hún þarf að gera allt sjálf. Greyið hún.
Hin sagan er um dreng úr höfuðborginni sem heitir Sverrir Örn og átti hann til að mynda stóran brjóstkassa eitt lítið augnablik. Þessi drengur var messi í janúartúrnum og var það í lok túrs er lokaþrifin voru á fullu að hann hittir á tvo inni í stakkageymslunni. Hann spyr þá hvort hægt sé að velja sér grams til að taka með sér heim. Annar mannanna spurði hvort hann hefði ekki lagt inn pöntun hjá skippernum í byrjun túrs og ef ekki þá fengi hann steinbít í grams. Steinbít hváði drengurinn get ég eitthvað notað það. Jájá sagði hinn þú getur selt gramsið í Hamborgarabúluna færð einn borgara en ef þú vilt franskar og pepsí þá þarftu að borga það sjálfur. Djöfulsins vesen sagði drengurinn, ég var búin að lofa mömmu, ömmu og frænku úti Noregi að gefa þeim ýsu þegar ég kæmi í land. Er hann með tárin í augum þegar Fúsi Unnars kemur að og spyr drenginn hvað sé að. Ég gleymdi að panta grams hjá skipstjóranum í byrjun túrs og fæ þá bara steinbít í staðinn og ég var búin að lofa svo mörgum að gefa þeim ýsu þegar ég kæmi í land. Þetta er ekkert mál sagði Fúsi fljótur að átta sig, ég skal skipta við þig á gramsi en þá verður þú að laga til í klefanum hjá mér og það vel. Drengurin sá að nú gat hann staðið við öll loforðin og samþykkti þetta. Er við fórum frá borði fór drengurinn sáttur með ýsugramsið hans Fúsa og Fúsi en sáttari með ýsugramsið hans Sverris og vitandi það að þegar hann kæmi um borð eftir inniveruna væri klefin hans angandi af trjábarkar ilm og bluberry angan í bland.
»
29.04.2008 01:10:06 / maggi
Jæja þá er komið af því að tilkynna sigurvegarann. Eins og ég er búinn að segja við Arnar þá er fólk annað hvort vinnarar eða taparar, þó að´ég hafi tapað núna þá hefur það ekki gerst áður. En maðurinn sem er vinnari mótsins er daddarada:

Hann Bassi okkar. Hann rúllaði upp Gunter "The good German" í þremur settum. Snilli hans í þessum leik var þvílík að Gunter sá aldrei til sólar.

Verðlaunin voru nú ekki af verri endanum, sjampú, hárnæring og greiða. En hann gaf Gunter greiðuna í sárabætur.

Hérna er ein mynd af Góða þjóðverjanum fyrir mótið, hann var ekki svona glaðhlakkalegur eftir að Bassi var búin að vinna hann. Hann segir að pílukast sér hans sport og hefur áhuga á veiði og sökkugerð.
Af áhöninni er það að frétta að það hefur farið mikill tími í að kenna Arnari litina en hann er nú að verða búinn að ná því. Morgundagurinn mun fara í það að kenna honum að telja, svona erum við nú góðir við hvorn annan hérna um borð.
»
28.04.2008 07:04:02 / oskarf
Það verða þeir Kristján Lúðvík Möller, Bassi og Gunter Frehsmann,The Good German sem munu spila til úrslita á billjardmóti Sturlunga. Þeir unnu sína undanúrslitaleiki nokkuð sannfærandi 2 og 0. Klukkan hvað leikurinn verður er allt undir vilja hins brottflutta eyjamanns sem nú býr í Vilta Vestrinu Kópavogi Binna Stefáns en hann er en sár að geta ekki tekið þátt í þessu móti, að eigin sögn er hann allsvakalegur spilari. En leikurinn verður einhvern tíman í dag.
En að því sem við eigum að vera að gera, það er að veiða fisk sem gengur bara all sæmilega. Við hér í vinnslunni er bara nokkuð sáttir við þá brúarmenn, þeir hafa nokkuð stöðuga vinnu fyrir okkur. Menn eru almennt ánægðir með lipu og tipu þessa dagana og segjum eins og maðurinn sem missti af bekkjarbílnum sem var á leið inn í dal, Lífið er yndislegt en veðrið var svo gott að hann gat gengið inneftir með sinni dömu.
Farfuglar eru á leið í land, það var hópur sem hefur ákveðið að taka sér smá pásu hér á skipinu. Páll Sigurður vélstjóri flottur karl sagði mér að þetta væru mörgæsir eða einhver svartbakstegund á leið til sumardvala norðan heiða
»
27.04.2008 20:21:46 / oskarf
Þá eru leikir í áttamannaúrslitum lokið, Hrönn, Bassi, Rósmundur Darri og Gunter eru komin áfram. Það voru mikil mistök að ráða þennan dómara við mótið. Undanúrslitaleikirnir verða spilaðir í nótt og úrslitaleikur eftir hádegi á morgun.
»
27.04.2008 07:08:13 / oskarf
Jæja þá er kvöldvakan yfirstaðin sem skagfirðingarnir Bjössi, Helgi Þór og Hrönn sáu um og í sannleika sagt var hún ömurleg. Það var einn sem virtist hafa gaman af vökunni en það var Arnar Leó sem einnig er frá Sauðarkrók. Var reynt að ná Geirmundar Valtýs fíling en það tókst engan veginn, rammfölsk og léleg túlkun. En batnandi mönnum er best að lifa og veit ég að þau reyna að bæta sig. En það verður örugglega meira stuð á næstu kvöldvöku sem verður á miðvikudagskvöld en þá munu stuðboltarnir feðgarnir Gummi og Maggi litli sjá um fjörið maður kemst bara í þjóðhátíðarfíling við hugsunina.
32 og 16 mannaúrslit í billjardmótinu voru spiluð í dag, ég Óskar Freyr, Arnar Leó, Rósmundur Darri, Bassi, Hrönn, Jón Sigursteinns, Gunter og Einar Þór eru komin í 8 mannaúrslit. Það verður að segjast eins og er að ég (Óskar Freyr) er líklegasta meistaraefnið áhorfendur hváðu er ég setti eina niður veit ekki hvað það kallast en kúlan fór svona ping, pong, ding, púff og oní. Frábært skot. Brúarmenn geta ekki tekið þátt í mótinu því messinn sem annars mundi leysa þá af er dómari á mótinu. Vélstjórar 1,2 og 3 duttu allir út í 32 mannaúrslitum.
Svo þið vitið það þá er Leeds búið að tryggja sér umspilsrétt en hægt er að fylgjast með á leedswin.uk.
»
26.04.2008 07:56:53 / oskarf
Við vorum að hífa núna fyrr í morgun og í aflanum var líka þessi væna lúða. Þór netamaður fór strax í móttöku og setti spotta í kjaftinn á henni til að hægt væri að draga hana fram þegar að því kæmi. Gústi selfyssingur sem er í sínum fyrsta túr er móttökustjóri á annari vaktinni og byrjar að tæma móttökuna. Svo kemur hann á sínu hundraði og kalla í baadermanninn að koma með sér. Baadermaðurinn fór með Gústa aftur í móttöku og Gústi bendir á flykkið og spyr hvort þetta sé lúða. Baadermaðurinn játar því en þá tekur Gústi í spottan og spyr hvernig í andskotanum hún hafi farið að þessu.
Trausti Gylfa Sturlunganefnd kallar, okkur vantar lykilorð yfir vefstjórn á síðunni hafðu samband sem fyrst. Þú gerir upp við nefndina og nefndin gerir upp við þig.
Arnbjörn matsmaður er en ófundinn, einhver taldi sig hafa séð hann í Bónus á Akureyri.
Það er bræla hjá okkur núna og verðum við því að fresta billjardmótinu í óákveðin tíma.
Kvöldvakan hefst klukkan 20.30 og munu þau Bjössi, Helgi Þór og Hrönn öll frá Sauðakrók sjá um að skemmta okkur hinum.
»
25.04.2008 09:03:39 / maggi
Mig langaði bara að bæta við myndum af atburði næturinnar.

Hérna er Pétur að segja Bryndísi frá meiddinu sínu. En merkilegt nokk þá var hún búinn að skera bita af einum puttanum sínum. Segið svo að fjölskyldan geri ekkert saman.


Helga Dís að athuga hvort hún sé komin með hár á bringuna eftir að hafa tekið lýsi fjóra daga í röð.
»
Síður:
1 2 3 ...
12